Tölvuleikurinn GTA varð til fyrir slysni
Í RÚV-þættinum Miðstöðin er rifjuð upp sagan af því hvernig tölvuleikurinn Grand Theft Auto varð til fyrir slysni árið 1997. Skoskt þróunarfyrirtæki stefndi að hefðbundnum löggu- og bófaleik en forritunarvilla gerði löggurnar óvenju árásargjarnar, sem heillaði prófunaraðila svo að ákveðið var að halda eiginleikanum inni.

