Rafmagnslaust í Ármúla og nágrenni
Háspennubilun hjá Veitum olli rafmagnsleysi við Ármúla, Síðumúla, Hallarmúla og fleiri götur í Reykjavík. Bilunin truflaði einnig umferðarljós á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar og lögregla þurfti að stýra umferð.
