Óeðlilegt að einn eða tveir flokkar geti selt mikilvæga innviði
Borgarfulltrúi Samfylkingarinnar gagnrýnir að meirihluti í borgarstjórn geti selt mikilvæg innviðafyrirtæki, eins og Ljósleiðarann, án aukins meirihluta. Flokkurinn leggur til að slíkar óafturkræfar ákvarðanir þurfi breiðari samþykki vegna áhrifa á verðlag fjarskiptaþjónustu.










