„Ég held ég gæti gert betra Facebook en Facebook“
Íslensku hjónin Ragna Árný Lárusdóttir og Snorri Gylfason hafa þróað samfélagsmiðilinn Alvildu, ætlaðan fólki 15 ára og eldri, þar sem notendur skrá sig inn með rafrænum skilríkjum til að koma í veg fyrir gervireikninga og botta. Miðillinn er aðgengilegur sem smáforrit og nú einnig sem vafraútgáfa, og er ókeypis í notkun.














