Segir kjör Wolt-sendla skána á næstu fjórum til sex vikum
Talsmaður Wolt-sendla segir fund með stjórnendum Wolt hafa gengið vel eftir að sendlar lögðu niður störf vegna skertra launa. Wolt segir misræmi í greiðslum stafa af tæknihnökrum við kerfisuppfærslu og að úrbóta sé að vænta á næstu fjórum til sex vikum.










