Alvarlegt fyrir málþroska að minna sé spjallað við börn
Íslensk málnefnd varar við því að snjalltækjanotkun og tölvuleikir á ensku dragi úr samskiptum við börn á móðurmáli, sem skaði málþroska þeirra. Nefndin kallar eftir vitundarvakningu, öflugra regluverki og að löggjöf um gervigreind taki mið af stöðu íslenskunnar.

