Gervigreind er áskorun í fjarnámi og kennarar dálítið smeykir
Erlendar fregnir af nemendum sem láta gervigreind sjá um fjarnám frá a til ö vekja spurningar um stöðuna hér heima. Hjá Háskólanum á Akureyri, þar sem 77% nemenda eru í fjarnámi, hefur í tvö ár verið unnið að viðbrögðum sem miða að því að koma í veg fyrir misnotkun frekar en að banna tæknina.


