Stöðva ekki gervigreindina en vilja hafa áhrif á innleiðingu hennar
Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, sagði í þingsetningarræðu að ekki væri hægt að stöðva innreið gervigreindar á vinnumarkað en launafólk ætti rétt á gagnsæi um hvernig störf þess séu metin. Hann vísaði í baráttu Wolt-sendla og sagði að ávinningur af aukinni framleiðni ætti að skila sér til launafólks, ekki aðeins atvinnurekenda.













