Auð hulstur á sögulegum tímamótum tölvuleikja
Hundruð spilara mættu á kvöldopnun Elko í Lindum til að sækja forpantaðan GTA 6, en leikurinn kemur eingöngu út stafrænt svo hulstrin innihalda aðeins kóða og plaköt, engan disk. Forstöðumaður markaðssviðs Elko telur þetta hafa getað verið síðustu kvöldopnunina sinnar tegundar þar sem framleiðslu PlayStation-diska á að hætta árið 2028.




