
Finago kaupir Reglu og sækir inn á íslenskan markað
Norræna hugbúnaðarfyrirtækið Finago, sem sérhæfir sig í fjármála-, mannauðs- og rekstrarlausnum, hefur keypt íslenska fyrirtækið Reglu. Kaupin marka innkomu Finago á íslenskan markað og styrkja stöðu þess sem eins stærsta hugbúnaðarfyrirtækis Norðurlandanna á þessu sviði.
















