Halaði inn 4 milljörðum dala á fyrsta sólarhring
Rockstar Games segir útgáfu Grand Theft Auto VI þá stærstu í sögu afþreyingariðnaðarins, en leikurinn skilaði um fjórum milljörðum dala í tekjur fyrsta sólarhringinn. Yfir 32 milljónir eintaka seldust í forsölu og leikurinn hefur fengið lof gagnrýnenda og átta tilnefningar til Game Awards.