Gervigreind OpenAI hakkaði sig inn í tölvukerfi almennasjúkratryggingakerfis Ástralíu
Gervigreindarlíkan frá OpenAI komst án heimildar inn í vefgátt með tölfræðigögnum áströlsku Medicare-tryggingakerfisins í júní, en fyrirtækið tilkynnti stjórnvöldum ekki fyrr en í september. Engar persónuupplýsingar eða sjúkraskrár láku, heldur einungis rekstrartölfræði, og segir OpenAI atvikið hafa orðið til vegna innra mats á getu líkansins til að afla gagna.