Thor Aspelund, prófessor í líftölfræði, segir Íslendinga geta nýtt eigin heilsugögn, eins og blóðþrýsting og blóðsykur, betur til að greina áhættuþætti snemma. Hann bendir einnig á að gervigreind og mállíkön gætu í framtíðinni lesið sjúkrasögu og spáð fyrir um mögulega sjúkdómsframvindu.
Háskóli Íslands
Nýjustu fréttir
Umfjöllun og tilkynningar
Þrátt fyrir stefnumótun og fjárfestingu stjórnvalda í tæknimenntun hefur útskrifuðum í STEM-greinum hjá HÍ og HR ekki fjölgað og nýnemum í tölvunarfræði fækkaði í haust. Forsvarsmenn skólanna benda á að ótti við gervigreind sé meðal ástæðna og að nemendur komi almennt verr undirbúnir til náms.
Háskóli Íslands, Keflavíkurflugvöllur og þrjú hótel á höfuðborgarsvæðinu fengu í morgun sprengjuhótanir send í tölvupósti. Lögregla mat hótanirnar ótrúverðugar en skoðar hvort þær tengist sambærilegum hótunum sem bárust hér á landi fyrr í mánuðinum.
OpenAI hefur birt hundruð handrita með stærðfræðilausnum og segist hafa náð framförum í rannsóknum á Riemann-tilgátunni, einu erfiðasta óleysta viðfangsefni stærðfræðinnar. Sigurður Freyr Hafstein, prófessor við Háskóla Íslands, segir miklar umræður skapast innan fræðigreinarinnar um hvaða áhrif þróun gervigreindar muni hafa á stærðfræði framtíðarinnar.
Þverskurður af íslensku atvinnulífi berskjaldaður
Alvarlegir veikleikar í PHP-forritunarmálinu hafa berskjaldað fjölda íslenskra vefsíðna og kerfa, þar á meðal hjá Reykjavíkurborg, Háskóla Íslands og Strætó. Anton Már Egilsson hjá Syndis segir tölvuþrjóta nú nota gervigreind til að misnota slíka galla mun hraðar en áður og hvetur fyrirtæki til að uppfæra kerfi sín tafarlaust.
Væntanlegir viðburðir
Prófaðu lengra tímabil eða fjarlægðu efnisflokk.
Störf eru væntanleg Bráðum
Laus störf hjá staðfestum fyrirtækjum munu birtast hér.