Huawei sakfellt fyrir að stela iðnaðarleyndarmálum
Bandarískur kviðdómur sakfelldi Huawei í tíu af tólf ákæruliðum eftir þriggja mánaða réttarhöld í New York, meðal annars fyrir bankasvik og samsæri um þjófnað á iðnaðarleyndarmálum. Fyrirtækið er sagt hafa komið sér upp bónuskerfi til að umbuna starfsmönnum fyrir að afla trúnaðarupplýsinga frá keppinautum, þar á meðal frumkóða fyrir netbeina og loftnetstækni.

