Signal tekur fyrir að taka skjáskot af spjalli
Signal ætlar að koma í veg fyrir að notendur geti tekið skjáskot af samtölum í forritinu til að verjast því að gervigreindarforrit í stýrikerfum snjalltækja fylgist með og lesi einkaspjall. Forstjóri Signal, Meredith Whittaker, segir gervigreindaraðstoðarmenn sífellt ásælnari í að vakta skjái notenda til að „bæta upplifun“, sem ógni dulkóðaðri persónuvernd forritsins.