Kanna áhrif samfélagsmiðlabanns á geðheilsu ungs fólks
Rúmlega 300 þúsund bresk ungmenni taka þátt í rannsókn sem kannar hvaða áhrif fyrirhugað samfélagsmiðlabann á borð við Instagram, TikTok og Snapchat gæti haft á geðheilsu þeirra. Tíu verkefni í Englandi, Wales og Skotlandi eiga að endurspegla fjölbreyttan hóp ungmenna áður en bannið tekur gildi næsta vor.