Stigmögnun skuggastríðsins
Fjölþáttaógnir gegn Evrópu hafa aukist samhliða innrásarstríði Rússlands í Úkraínu og ná langt út fyrir netárásir og falsfréttir. Meðal dæma eru sprengjur í pakkasendingum, drónar, skemmdarverk á sæstrengjum og dularfullir drónar við flugvelli, að sögn ráðamanna og NATO.






