Tilkynning fyrirtækisIS
Sonja ráðin viðskiptastjóri hjá OK
Tæknifyrirtækið OK hefur ráðið Sonju Ýri Eggertsdóttur í starf viðskiptastjóra. Hún kemur frá Wise Lausnum þar sem hún starfaði sem viðskiptastjóri undanfarin fjögur ár, en þar áður var hún markaðsstjóri hjá Þekkingu.
