Heilbrigðisráðuneytið er á lokametrum útboðs vegna Stafrænnar heilsu þótt Alþingi hafi ekki enn samþykkt lagafrumvarp um verkefnið. Landspítali og Persónuvernd gagnrýna óljósa ábyrgðarskiptingu og víðtækar heimildir til gagnavinnslu, á meðan sérfræðingar vara við auknum netógnum.
Efni
Heilbrigðistækni
Fréttir
Heimildarmyndin „You Can See Everything“ um Elizabeth Holmes og svikin í kringum líftæknifyrirtækið Theranos sló aðsóknarmet fyrir heimildarmyndir á Íslandi um helgina. Tæplega fimm þúsund manns sáu myndina, sem fjallar um hvernig loforð um byltingarkennda blóðskimunartækni reyndust uppspuni.
Rafræna sjúkraskrárkerfið Heilsugátt hjá Landspítalanum datt niður í rúman stundarfjórðung í dag, sem gerði starfsfólki ókleift að nálgast sjúkraskrár eða bóka blóðprufur. Spítalinn segir truflunina ekki hafa stefnt öryggi sjúklinga í hættu og er nú að kanna orsökina.
Rúmlega 300 þúsund bresk ungmenni taka þátt í rannsókn sem kannar hvaða áhrif fyrirhugað samfélagsmiðlabann á borð við Instagram, TikTok og Snapchat gæti haft á geðheilsu þeirra. Tíu verkefni í Englandi, Wales og Skotlandi eiga að endurspegla fjölbreyttan hóp ungmenna áður en bannið tekur gildi næsta vor.
Byltum fækkað verulega með aðstoð gervigreindar
Á hjúkrunarheimilinu Móbergi á Selfossi hefur byltum heimilismanna fækkað um allt að helming eftir að gervigreindarlausnin Teton var tekin í notkun. Deildarstjóri segir tæknina hafa aukið öryggi íbúa og dregið úr álagi á starfsfólk.
Útboðsfrestur stórs verkefnis ríkisins, Stafrænnar heilsu, rennur út í næstu viku en verkefnið á að innleiða stafrænar lausnir og gervigreind í heilbrigðiskerfinu til að auka hagræðingu og bæta aðgengi að gögnum. Forstöðumaður segir markmiðið meðal annars að koma í veg fyrir tvíverknað milli stofnana, en starfsfólki á vegum verkefnisins mun fjölga verulega með tilflutningi starfsmanna frá öðrum stofnunum.
Alvotech birti uppgjör fyrir fyrstu níu mánuði ársins þar sem heildartekjur drógust saman um tæplega hundrað milljónir dala milli ára, þó rekstrarhagnaður hafi aukist um tíu milljónir dala. Hlutabréf félagsins lækkuðu um tæplega níu prósent í kjölfarið.
Íslensk erfðagreining hafnar ásökunum Kára Stefánssonar um að fyrirtækið hafi farið með ósannindi í umfjöllun Bloomberg um rannsóknir tengdar lyfinu MariTide. Fyrirtækið segir vísindamenn sína hafa lagt fram mikilvægar erfðafræðilegar niðurstöður sem styrktu þróun lyfsins, en ekki verið fyrst til að tengja GIPR-próteinið við líkamsþyngd.

