FjártækniIS
Fjármálafyrirtæki verða að efla varnir gegn netógnum vegna gervigreindar
Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabankans hvetur fjármálafyrirtæki til að efla varnir gegn netógnum þar sem gervigreind geti aukið hraða og umfang netárása. Nefndin segir fjármálakerfið traust en varar við alþjóðlegum efnahagslegum óróleika sem gæti reynt á viðnámsþrótt þess.